föstudagur, febrúar 20, 2004

Bréf frá Hr. Tippi.

Ég, herra Tippi, fer hér með fram á kauphækkun með meðfylgjandi
rökstuðningi:

Starf mitt felst í miklu líkamlegu erfiði. Ég vinn oft á miklu
dýpi.
Ég tek áhættuna af því að reka hausinn inn fyrst í öllum verkum
sem ég
geng
í. Ég fæ ekki frí um helgar eða á hátíðisdögum. Ég vinn við
rakamettaðar aðstæður.
Ég fæ ekki borgað fyrir yfirvinnu.
Ég vinn á dimmum vinnustað með lélega loftræstingu. Ég vinn við mjög hátt hitastig.
Það kemur fyrir að ég er krafinn um að vinna í bakgarðinum sem mér finnst ekki
þrifalegasti staður í heimi.
Ég er iðulega krafinn um vinnuframlag þótt allir sjái að ég er verulega slappur.
Mér er skipað að fara ítrekaðar ferðir inn á þennan dimma og raka vinnustað þótt allir viti að það endar alltaf með því að ég kasta upp.
Starf mitt gerir mig berskjaldaðan gagnvart hættulegum
sjúkdómum.
Virðingarfyllst: Hr. Tippi

SVAR FRÁ STJÓRN:

Kæri Hr. Tippi. Eftir að hafa metið beiðni þína og farið yfir
þau rök sem þú leggur fram hefur stjórnin ákveðið að hafna beiðni þinni
af eftirtöldum ástæðum:

þú vinnur aldrei í 8 tíma samfellt. Þú fellur iðulega út af og sofnar í vinnunni, jafnvel eftir mjög stuttar vinnulotur. Þú hlýðir ekki alltafskipunum stjórnandans.
Þú heldur þig ekki alltaf á þínum
vinnustað og það hefur oft sést til þín við að heimsækja aðra vinnustaði.
Þú tekur aldrei frumkvæðið, það þarf iðulega að troða þér inn á vinnustaðinn til
að þú farir að vinna.
Það hefur oftar en ekki komið fyrir að þú átt í erfiðleikum með að komast í gang í vinnunni, og þarft þá á fullmikilli handleiðslu að halda.
Þú roðnar alltaf þegar þú ert beðinn að vinna.
Þú hefur jafnvel mætt til vinnu með ostaslettur á hálskraganum.
Þú skilur frekar subbulega við vinnustaðinn þegar þinni vakt lýkur.
Þú ferð ekki alltaf eftir öryggisreglum eins og t.d. þeim að vera í réttum hlífðarfatnaði við vinnu.
Það vita það allir að
þú munt láta af störfum löngu áður en þú verður 65 ára. Þú getur ekki unnið tvöfaldar vaktir. Þú átt
það til að yfirgefa vinnustaðinn áður en þú hefur lokið því verkefni sem fyrir þig var
lagt. Og eins og allt þetta sé ekki nóg, þá er því við að bæta að þú hefur
þráfaldlega sést á sífelldu rápi inn og út af vinnustaðnum, berandi tvo mjög grunsamlega poka.

Virðingarfyllst: Stjórnin



--------------------------------------------------------------------------------

Engin ummæli: