Ég er komin með ógeð á þessu veðri, það er búið að vera rok og rigning núna í marga marga daga og á eftir að vera í marga marga daga í viðbót, ég nenni ekki meir.
Ég er sem betur fer að fara í frí núna í 3 daga eða reyndar bara 2 því ég í góðmensku minni og peningagræðgi ætla að taka eina næturvakt á laugardaginn. Ætla ekki á árshátíð svo ég ætla bara að vinna og græða á meðan hinar skemmta sér:)
Fínt að taka eina næturvakt þá er ég búin með minn skammt af aukavöktum í bili!
Svo er ég að fá ML skutlurnar í heimsókn í kvöld í svona ekta "saumó" ,sem sagt kósy kvöld framundan.
Kannski maður kíki svo á afmælisbarnið á morgun enda ég svoldið bissý í dag og ég veit að hún er að læra þessi elska! Kannski ég fái köku???
Ætla að hætta núna og vinna pínu því svo er ég farin í frí:)
Adios amigos
fimmtudagur, mars 11, 2004
Birt af Eyrún kl. 13:04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli