miðvikudagur, mars 17, 2004

Ég er orðin húkt á þessum leik motas, náði samt að klára hann alveg ein í dag og er ekkert smá montin. Ég held ég verði að fara að finna mér einhvern annan leik til að festast í það er svo svakalega lítið að gera, það bara hringir engin inn. Ekki það að ég sé að kvarta, mér finnst það alveg þrælfínt!
Svo er maður komin í svaka vorfíling enda búið að vera geggjað gott veður undanfarið verst hvað það er ennþá langt í sumarið.
Hlakka svoldið til í sumar að fá sumarfrí ég hef aldrei átt sumarfrí, kann ekkert á það að hafa ekkert að gera hluta af sumrinu. Ætla samt að taka mér mánuð í sumarfrí og bara njóta þess að vera í afslöppun og leti. Þarf samt að fara ættarmót tvær helgar í röð og svo bara útilegur gaman gaman:)
Finnst samt skrítið að vera ekki að vinna í Reykjadal á örugglega eftir að kíkja í heimsókn þangað ég veit allavega að þar verður sama fjörið og vanalega.

Engin ummæli: