Fór í road trip í gær ásamt mínum heittelskaða,Krillu, Hössa, Ingu og Gumma, brunuðum í Hveragerði og skelltum okkur í sund. Fínt að busla í lauginni en gufan var dauði og djöfull, hún var svo helvíti heit að það var engan veginn hægt að vera þar inni. Eftir allt svamlið heyrðist því fleygt úr karlaklefanum að Jói fel hefði gefið upp öndina, líklega af völdum kransæðastíflu eða steranotkunar, nú tala hvergerðingar ekki um annað. Merkilegt hvað þessir kallar tala um í sturtu!
Hössi dró alla með sér í sveitina að skoða musur og mjaltavélar, það var svo í boði að gæða sér á mélkögglum og mjólk. Þar sem engum þótti þetta nógu spennandi veitingar var stefnan tekin á Selfoss að athuga hvort að við fynndum ekki eitthvað girnilegra, eftir mikla leit var ákveðið að ráðast á kjúllana á KFC.
Eftir mikið át var brunað heim á leið, allir þreyttir og búnir á því eftir góða skemtum á suðurlandsundirlendinu.
mánudagur, mars 01, 2004
Road trip
Birt af Eyrún kl. 11:03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli