Það er vorgleði hjá símanum og það eru allar deildir með eitthvað húllumhæ. Við erum með bleikt þema í gangi, við Hulda, Auður og Fríða skreyttum salinn í gær með músastigum og blöðrum, svo erum við allar með bleikar og fjólubláar prinsessukórónur á hausnum með bleikan varalit. Gasalega lekkert.
Við erum allavega mest skreytta deildinn af öllum þeim sem við kíktum inn á, mér finnst eiginlega svindl ef við fáum ekki verðlaun.
Það er víst eitthvað um að vera í kvöld í glæsibæ verðlaunaafhending og meira sprell, en maður þarf víst að vakna í vinnuna þannig ætli ég sleppi ekki að kíkja þangað. Fer bara heim að sofa og fikta smá í nýja símanum mínum:)
miðvikudagur, apríl 21, 2004
Birt af Eyrún kl. 16:55
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli