Ég er alveg að verða búin að vinna, stefnan er tekin heim í smá leti og síðan í fyrstu og síðustu ferminguna þetta árið. Er satt að segja svoldið fegin, en það verður matur í veislunni ummmm ekkert að elda í kvöld.
Svo er ég barasta komin í 3 daga frí aldrei þessu vant, hlakka mikið mikið til að geta verið heima í afslöppun, kannski maður taki vorhreingerninguna um helgina??? Æi nei ég nenni því ekki.
fimmtudagur, apríl 22, 2004
Birt af Eyrún kl. 14:00
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli