úje ég málaði heima í gær, réttara sagt þá málaði Unnar og ég þvældist fyrir. Herbergið stækkaði um helming. Náum vonandi að klára að mála í dag það er svo lítið eftir bara ein umferð og svo loftið. Reyndar eftir að mála það sem á að vera bak við rúmið en það er bara smá blettur,ekki mikið mál.
Það fór allur gærdagurinn í það að vesenast í þessu málningarstússi fyrst að tæma allt herbergið og svo þrífa sparsla og mála. Íbúðin er í rúst!!!! Sókrates greyið skilur ekkert hvað um er að vera og heldur eflaust að við séum að ganga af göflunum.
Eini gallinn við að mála svona er að mig langar að mála alla íbúðina:(
mánudagur, apríl 12, 2004
Birt af Eyrún kl. 13:49
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli