Mig langar að taka af mér fótinn og frysta hann og geyma svo í nokkra daga!
Ástæða: það var gerð heiðarleg tilraun til að éta mig lifandi um helgina. Jamm þið lásuð rétt, annar fóturinn á mér var notaður fyrir ættarmót hjá flóaættinni og ég er öll bitinn. Mig klæjar alveg óbærilega mikið er búin að maka á mig after bite og það slær á mesta kláðann en mig klæjar samt...... ARG
Grunar sterklega að Sókrates hafi borið þetta með sér inn, þannig að hann fær nýja ól um hálsinn i dag, flóaband!!!!
Mæli ekki með því að halda flóaættarmót.
mánudagur, apríl 19, 2004
Birt af Eyrún kl. 10:17
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli