fimmtudagur, apríl 08, 2004

Mætt aftur í vinnuna eftir tveggja daga frí og er ekkert allt of spennt fyrir þvi er hálf þunn og tussuleg,en er bara að vinna í dag og morgun og er svo aftur farin í frí.
Fríið var alveg frábært náði að gera slatta mikið, fara í dekur, fara í útsýnisflug, kaupa málningu á svefnherbergið, draga múttu í blómaleiðangur, og svo fara í tvö afmæli. Byrjuðum í 25 ára afmæli hjá Rikey og fórum svo í 30 afmæli hjá Jóa og Jónasi. Mikið drukkið sungið og hlegið. Hinir ýmsu fjölskyldumeðlimir kominir í ansi annarlegt ástand og allir skemmtu sér vel. Bollan var orðin svo helv... sterk svona undir það síðasta að maður varð að blanda vatni út í til að geta drukkið hana. Enduðum svo á Ara í Ögri og svo var stefnan tekinn á Hlölla og svo heim.
Vaknaði ekki alveg sú ferskasta í morgun en tókst samt að mæta í vinnuna á næstum því réttum tíma.
Held ég fari snemma að sofa í kvöld!

Engin ummæli: