laugardagur, maí 29, 2004

Daddara mar' bara búin að svolgra í sig kaffi til að vakna almennilega, enda ekki alveg að fúnkera að vera hálfsofinni í vinnunni. Merkilegt hvað þetta kaffisull er fljótt að virka.
Ótrúlegt hvað það er pirrandi að geta ekki sofnað lág upp í rúmi og ekkert gerðist, reyndi að sofna yfir imbanum var ekki að virka. Samt var alveg ótrúlega svæfandi og hálf leiðinleg mynd sem ég var að horfa á K-pax, Kevin Spacey alltaf góður en myndin var bara svona blah. Skil ekki afhverju ég sofnaði ekki yfir henni.
Var orðin það desperate að ég notaði slökunaröndun úr jóga til að reyna að tæma hugann og sofna, virkaði ekki by the way.
Held ég hafi loksins náð að sofna eitthvað í kringum 4 í nótt og var því frekar mygluð þegar klukkan glumdi klukkan 7:15 í morgun.
Var því frekar mygluð og krumpinn þegar ég mætti.
Held ég taki stefnuna á rúmið mitt þegar ég er búin að vinna, leggja mig í ponku stund.

Engin ummæli: