Dýralæknaferðin gekk áfallalaust fyrir sig bit og klór í lágmarki og minn bara nokkuð sáttur, enda fékk hann að fara í bíltúr!
Svo var greyið eitthvað aumingjalegur í gærkvöldi var svaf bara sem er rosalega ólíkt honum og svo á endanum stóð hann upp og gerði sér lítið fyrir og ældi á gólfið. Lilta greyið varð svona líka veikur af þessu sprautuveseni sem betur fer er alveg heilt ár þangað til hann þarf að fara aftur.
Svo var ég að fá gleðifréttir áðan tölvan mín er búin í viðgerð, en hún var öll í rusli. Það þurfti víst að formata allt upp á nýtt eftir að búið var að hreinsa 5 vírusa út af henni. En sem betur fer var hægt að laga þessa elsku! Þannig að Raförninn fær hrós fyrir að vera með snillinga í vinnu!
þriðjudagur, maí 04, 2004
Birt af Eyrún kl. 16:15
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli