Ég get ekki sagt annað en að ég er bara komin í geggjaðan fíling fyrir kvöldið. Sit hérna í vinnunni og er með kveikt á útvarpinu og það hljóma bara júróvisjón lög gömul og ný. Allt gert til að kynda undir djammfílinginn!
Enda á kvöldið eflaust eftir að verða bráðskemmtilegt byrja á að fara í afmælisgrillveislu hjá hinni vinnunni minni, Til lukku rafernir með árin 20!!!!. Það á víst að grilla 2 heila skrokka og svo verður þessu skolað niður með einum ísköldum. Ekki amalegt það!
Og eftir grillveisluna er stefnan tekin í hinn hýra hafnarfjörð þar sem Anna Vilborg ofurskutla ætlar að leggja í að bjóða okkur vinkonunum í júróvisjónpartý. Verður eflaust þokkalegt stuð þar ef ég þekki liðið rétt.
Shake, shake, shake, shake, shake it mi amor
Crazy for love
Give me some more
Shake, shake, shake, shake, shake it mi amor
Crazy for love
Give me some more
Shake, shake, shake, shake, shake it mi amor
Crazy for love
Give me some more
Forever!!!!!!!
Þetta gríska lag er ekki á leiðinni út úr hausnum á mér........
laugardagur, maí 15, 2004
Birt af Eyrún kl. 12:21
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli