Ég hlakka svo til að vera í frí á morgun, er búin að vinna núna í 7 daga straigt og er komin með nett ógeð af vinnunni. Þá er alveg nauðsynlegt að komast í frí, þó það sé ekki nema bara í 1 dag. Sem betur fer er þessi langar törn bara á 6 vikna fresti.
Þarf að vísu að fara með Sókrates til dýralæknis á morgun til að láta bólusetja hann, hlakka engan veginn til því hann verður allraf svo ógeðslega fúll út í mig eftir á bítur,klórar og hvæsir. Skil hann svo sem alveg að vera fúll, honum er dröslað í bíltúr (sem honum finnst æði by the way) og er svo settur í fangið á ókunnugum manni með sprautu í hönd. Mér finnst samt að hann mætti taka smá geðvonsku út á dýralækninum því það er jú hann sem er að meiða hann!
Fyrir utan ferðina til dýra er markmiðið að eiga rólegan og afslappaðan frídag, kannski maður kíki í búðir og reyni að bæta aðeins í fataskápinn hann er orðinn ansi tómur.
sunnudagur, maí 02, 2004
Birt af Eyrún kl. 12:40
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli