"hvað í ólukkan ertu að gera?" Færeyingurinn í Dominos auglýsingunum er bara snilld. Fór eitthvað að pæla í auglýsingum í gær og það er alveg merkilegt hvað sumara eru afspyrnu leiðinlegar á meðan aðrar hitta beint í mark.
Nokkrar af þeim betri.
Osta og smjörsalan:
"maðurinn minn keypti þennann ost um daginn og ég bara verð að skila honum. Hann er allur í götum" Helga Braga brillerar enn og aftur.
Íslandsbanki:
"Svo kemur júlí, Árni hvað ert þú að gera þarna. Maður verður nú að taka sumarfrí kem svo sterk aftur inn í ágúst" Halldóra Geirharðs fer alveg á kostum.
Thule auglýsingarnar
"ðe vækíngs vent tú Englend end took all the prittí vimen bekk tú æslend,and had kids with ðem. ðets væ oll ðö prittí vimen ar in æslend end oll ðö öglí vimen ar in Englend"
Þarf að segja meira?
Svo náttúrulega færeyingurinn hjá Dominos
"Ertu heyrnarveikur ég sagði með brúnum svömpum ekki kúskturrku"
Snilldin ein.
Þær verstu
Allt sem heitir dömubindaauglýsingar.
Það er alveg sama hvaða bindi maður notar manni líður aldrei það vel að mann langar að dansa um á nærbuxunum af einskærri hamingju. Og það veitir manni enga vellíðunartilfinningu að vera með vængi hvort sem þeir eru extra langir eða ekki.
Ilmefnaauglýsingar
"áður fyrr eyddi ég eins litlum tíma og ég gat á baðherberginu"
Mig langar aldrei að eyða einhverjum svakalegum tíma inn á baði þótt ég sé með air wick þar inni.
Sjampóauglýsingar:
Common hárið á manni verður aldrei eins og á módelinu sem var með hárgreiðslumeistara til að blása og greiða og bæta við extra shine.
Man ekki eftir fleirum í bili en þetta er ansi skemmtilegt pælinarefni!!!
þriðjudagur, maí 25, 2004
Birt af Eyrún kl. 09:51
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli