mánudagur, maí 10, 2004

Jæja ég er búin að breyta einu sinni enn en það er bara gaman að þvi, það var að koma alveg fullt af nýjum bakgrunnum inn hjá blogger þannig að ég varð að prufa!
En hvað um það helgin var alveg ótrúlega næs strax eftir vinnu á föstudag skellti ég mér í sund með Ríkey og Krillu enda alveg súper gott veður. Eftir sundið skiluðum við Ríkey aftur í skólann því hún er á fullu að læra undir próf þessi elska!
Aftur á móti vorum við Kristín orðnar mjög þyrstar eftir sundferð svo stefnan var tekin beint í ríkið, ummmmm bjór.
Kokkurinn ég snaraði svo fram geggjað góðum indverskum pottrétt og svo var stefnan tekin á bjórsull og djamm.
Ég djammaði ekki mikið enda var ég búin að lofa systur minni að fara með henni í húsdýragarðinn með frændur mína, var ekki alveg að meika þá ferð í þynnku. En ég er að fara að passa þá í vikunni foreldrarnir að fara til útlanda og skilja krílin eftir hjá mér, þá er víst betra að vera búin að eyða smá tíma með þeim svo þeir taki mig í sátt.
Eyddi svo kvöldinu í rólegheitum þ.e. fyrir framan imbann með bjór í hönd.
Enn ein ljúf helgin liðin og nú er maður bara mættur í vinnu enn og aftur, reyndar er vikan ljúf er í fríi á fimtud. og föstudag. þannig að þessi verður fljót að líða, gaman að því!

Engin ummæli: