Nenni ekki að vera hér langar að vera heima að kúra undir sæng og gera ekki neitt. Það er svona semi þynnka í gangi aðalega bara þreyta samt.
Eftir partýið í gær fórum við á Nasa í júróvisjónpartý með Páli Óskari og oh my god það var svoleiðis stappað af fólki það var ekki hægt að snúa sér við hvað þá komast áfram og engan veginn hægt að komast á barinn eða WC en það var samt geðveikt gaman. Kíktum svo á Ara í Ögri til að hitta Krillu og Hössa en þá voru þau æst í að fara eitthvað annað svo það var arkað niðrá torg aftur okkur tókst samt einhvern veginn að týna þeim á leiðinni.
Þannig að við röltum bara á Hlölla og stefndum beint heim.
En það var hægara sagt en að komast heim það voru engir leigarar á svæðinu og bókstaflega slegist um þá örfáu sem birtust.
Svo við Unnar ákváðum að það væri ekki svo langt út á nes að við gætum ekki labbað heim! En ég sé enn eftir því að hafa labbað heim þvi mér hefur sjaldan liðið eins illa í fótunum. Mæli ekki með því að labba úr miðbænum út á seltjarnarnes á támjóum pinnahælum. Ég fór líka úr skónum einu sinni á leiðinni og labbaði á sokkaleistunum og svo aftur þegar við vorum alveg að komast heim.
Enda fór ég beint í fótabað til að reyna að lífga fæturna við.
Vaknaði ofurspræk í morgun þannig að þreytan er að hellast yfir mig núna og það eru heilir 4 tímar þangað til ég kemst heim.............
sunnudagur, maí 16, 2004
Birt af Eyrún kl. 17:46
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli