oooh hvað það var erfitt að vakna í morgun. Sit hér í vinnunni og er að berjast við að halda augunum opnum. Ég sem fór ekki einu sinni seint að sofa. Vaknaði reyndar um 5 í morgun þegar Unnar var að brölta heim af djamminu, en náði samt að sofna aftur. Sem betur fer er stuttur dagur í vinnunni í dag, þarf að vísu að fara að skúra líka en það er seinnitíma vandamál.
Sem betur fer er ekki mikið að gera enn sem komið er en það endist ekki lengi ef ég þekki íslendinga rétt!
mánudagur, maí 31, 2004
Birt af Eyrún kl. 08:43
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli