Það er eiginlega allt of gott veður til að vera að vinna í dag! Ég er allavega ekki að nenna að vinna í augnablikinu.
Ég var næstum dauð úr hita í dag ég var að keyra í vinnuna en nei þá bara öll umferð stopp á miklubrautinni, það tók mig 15 mín að fara frá Lönguhlíð og upp að gatnamótunum á Kringlumýrarbraut. Þetta tekur vanalega mínútu á venjulegum umferðahraða en nei takk heilar 15 mín í fokking 25 stiga hita inn í bíl með allar rúður niðri. Ég var frekar pirruð þegar ég mætti í vinnuna.
En núna eru bara 5 tímar eftir í vinnunni og svo vinna á morgun og hinn og svo..........
SUMARFRÍ!!!!
mánudagur, júní 21, 2004
Birt af Eyrún kl. 16:58
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli