Bakið mitt er alveg við það að gefa upp öndina, Það er ekki svo sniðugt að þurfa að sitja 8 tíma á dag fyrir framan tölvuskjáinn eftir að hafa verið í fríi svona lengi. Ekki alveg það besta að sitja og vera illt í bakinu mæli ekki með því!
Mér finnst þetta sérstaklega fúlt þar sem ég veit að það á ekki eftir að batna neitt á næstu mánuðum á frekar eftir að verða verra ef eitthvað er.
Vildi að ég gæti setið í lazy-boy með nuddi í vinnunni, gott að geta látið sig dreyma!!!
miðvikudagur, júlí 28, 2004
Birt af Eyrún kl. 15:28
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli