je dúdda mía mar er bara ekkert búin að skrifa lengi lengi. Ussu suss en maður á ekkert að vera að hanga í tölvunni þegar maður er í fríi eða hvað?
Þvílíkt dásemdarlíf að vera í sumarfríi þetta er snilld búin að ferðast alveg slatta, tókum 10 daga í að flakka. Keyrðum á ættarmót í Öxarfirði og þaðan í Patreksfjörð og þaðan lá leiðin á annað ættarmót í Borgarfirði. Fínt að flakka svona um en mikið svakalega var gott að koma heim. Svo er ég bara búin að vera að njóta þess að geta sofið út og slakað á og ekki þurft að pæla í vinnu.
Stefnan er svo tekin á útilegu um helgin með menntógellunum, 300 ára útilegan svokallaða, ástæða jú við erum 12 og verðurm allar 25 á árinu frumlegt;)
Jæja nú er ég allavega búin að láta vita af mér og nenni ekki að hanga meira í tölvunnu rigning úti og svona, sófinn kallar og góð spóla í tækið ljúfa líf ljúfa líf
fimmtudagur, júlí 15, 2004
Birt af Eyrún kl. 15:23
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli