fimmtudagur, ágúst 12, 2004

Ég elska þetta veður, verst hvað maður er óvanur þessum hita.
Búin að vera í fríi í tvo daga og það var náttúrulega bara þvílíkur bónus að fá svona gott veður.
Ég var aðallega að slappa af og letibykkjast enda mest lítið annað hægt að gera í stöðunni, mér lá við bráðnun á köflum.
En ég náði samt að afreka að sauma utan um sófann minn, hjálpa pabba að mála húsið að utan, láta smyrja bílinn, þrífa íbúðina og fara í bíó.
Mér finnst þetta bara nokkuð vel af sér vikið.
Fór á Farenheit 9/11 í gær, hún er svona þokkaleg bjóst samt við meiru af henni. Hún varð svona fullmikið vella á köflum.
En nú er ég mætt í vinnu enn og aftur og sit hér inni í þvílíkri mollu og svara og svara og svara....
skil ekki hvernig fólk nennir að liggja í símanu í svona góðu veðri.

Engin ummæli: