Mig syfjar svo í vinnunni að það er ekki normal. Verst að ég er hætt að drekka kaffi þannig að ég hef ekkert til að reyna að vekja mig. Skil ekki afhverju mig syfjar svona ég er búin að sofa alveg passlega mikið undanfarið. Kannski er ástæðan að þar er frekar rólegt að gera í vinnunni, hmm gæti verið.
Helgin búin að vera ótrúlega ljúf og róleg, eyddi laugardagskvöldinu í spjall og almennt slúður með Ríkey, enda varð ég að sjá til þess að hún myndi ekki læra yfir sig um helgina.
Svo var ég alveg über góð í gær og passaði fyrir systur mína á meðan þau hjónin drifu sig á ball.
Sat í sófanum og glápti á shrek og shrek 2 ekki amalegt það.
Ég er allavega dauðfeginn að hafa bara verið heima þessa verslunarmannahelgi enda ekki spennandi veður að vera á flakki.
mánudagur, ágúst 02, 2004
Birt af Eyrún kl. 17:29
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli