þriðjudagur, ágúst 17, 2004

Vá hvað ég er búin að vera í ótrúlega litlu blogg stuði undanfarið. Enda búið að vera geggjað veður og brjálað að gera í vinnunni. Kannski ég skáni eitthvað með vetrinum.
Það gerist hvort eð er ekkert mikið hjá mér þessa dagana mest vinna vinna vinna.
Fórum í gær að heimsækja Rósu og Davíð og litli prinsessuna þeirra, get nú ekki neitað því að maður fékk smá fiðring við að sjá svona kríli. Enda er farið að styttast í það bara 5 mánuðir eftir;o)
Var að panta tíma í sónar í morgun þannig að nú er bara mánuður í að við getum séð bumbubúann:)

Engin ummæli: