föstudagur, september 24, 2004

Birrr.......

Oj þvílíka skítaveðrið úti. Ekta veður til að liggja heima undir sæng og kúra. Kannski skella einni spólu í tækið og hafa það notalegt uppi í sófa. Ummm gott að geta látið sig dreyma. En ekkert kúr undir sæng fyrir mig í dag, reif mig upp klukkan 7 í morgun og skundaði í vinnuna.
En ég er bara að vinna til 15 þannig að ég get nú svo sem skellt mér upp í sófa með sæng þegar ég kem heim, kannski maður skelli bara einni Friends spólu í tækið og hafi það huggó.
Svo er helgin framundan og ég í fríi jibbý!!
Er að fara í leikhús annað kvöld að sjá Þetta er allt að koma og hlakka svoldið til að sjá það.
Nenni ekki að blogga meira í bili þannig að ég segi bara Góða helgi krúttpjakkarnir mínir!

Engin ummæli: