Hjálp tíminn líður ekki, finnst ég búin að vera hérna endalaust lengi en nei það eru bara liðnir 3 og 1/2 tími. Er að verða nett geðveik hérna oj og það er svo langt þangað til ég er búin að vinna................................
Við erum bara búnar að vera 2 að vinna í allan morgun og næsta manneskja kemur ekki fyrr en kl 14, skipulagið hér á bæ er ekki betra en þetta. Þetta getur farið svo í mig. Ekki það að það sé eitthvað brjálæðislega mikið að gera en það er bara pirrandi að þurfa að vera undirmannaðar.
Ljótt að segja það en það liggur við að ég sé farin að telja niður dagana þangaði til ég hætti, og það er ekki svo langt í það skal ég segja ykkur;o)
þriðjudagur, október 26, 2004
búhú
Birt af Eyrún kl. 11:31
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli