jamm þá er enn ein ferðin til dýralæknis búin, greyið mitt er alltaf að lenda í einhverjum hremmingum. Kom heim í gærkvöldi og kötturinn allur bólgin í framan, augun sokkin og hann þvílíkt aumur allur. Fór með hann á dýraspítalann í morgun og viti menn hann er með ígerð í sári. Eftir að dýralæknirinn var búin að kreista endalausan gröft úr sárinu ( jömmý) fékk hann bólgueyðandi og vöðvaslakandi sprautu og sem aukabónus vann hann sér inn 5 daga pensilínkúr. Alltaf stuð hér á bæ. Nú liggur hann bara og sefur enda sprautan farin að virka.
Vonandi er þetta síðasta dýralæknaferðin þetta árið.
Held ég fari bara að fordæmi Tesa og leggji mig bara líka
ZZZZzzzzzzzzz
fimmtudagur, október 14, 2004
Hrakfallabálkur
Birt af Eyrún kl. 11:49
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli