laugardagur, október 02, 2004

Vaxtarverkir

Bumban mín er með vaxtarverki. Búin að vera með stingi í gær og í dag og klæjar klæjar klæjar.
Svo er hún búin að stækka alveg helling bara allt í einu.
Tíminn er alveg ískyggilega fljótur að líða nú orðið finnst alveg rosalega stutt síðan ég uppgötvaði bumbubúann og núna eru bara 17 vikur í að hann láti sjá sig;o)
Sit hérna alveg grútmygluð í vinnunni og get ekki beðið eftir að komast heim til að leggja mig ponsu stund. Veit ekki hvernig mér tekst alltaf að gera allt annað en að koma mér í bælið á skikkanlegum tíma þegar ég á að mæta snemma daginn eftir. Svo sit ég daginn eftir og bölva mér fyrir að fara ekki fyrr að sofa. Alltaf svo gaman að vera vitur eftir á.
Held ég kíki samt í afmælisgjafaleiðangur þegar ég er búin að vinna, finna eitthvað handa 5 ára gutta, Any ideas?????
Svo er svo skemmtilegur dagur á morgun, ástæða jebb frí á morgun. Er svo gaman að eiga frí.
Best að halda áfram að vinna svo ég verði ekki skömmuð fyrir lélega svörun.
That´s all folks

Engin ummæli: