Fórum í gær og náðum í nýjan digital myndlykil hjá stöð 2 í gær og allt í gúddý með það. Svo fer Unnar að tengja gripin þegar við komum heim en nei nei þá er allt í tómu tjóni og þvílíkar truflanir og allt ómögulegt svo við hringdum í þjónustuverið hjá stöð 2 eftir endalausa bið náðum við í þjónustufulltrúa og hún segist ætla að ath eitthvað og við bíðum og bíðum en þá er skellt á. Örugglega óvart en frekar svekkjandi þegar maður er búin að bíða svona lengi. Síðan reyndi ég að hringja nánast á 5 mín fresti frá klukkan rúmlega 17 og þá fékk ég alltaf rödd sem sagði númerið sem þú valdir er á tali. Rétt fyrir klukkan 21 náði ég loksins inn og eftir rúmlega 20 mín. bið fékk ég loksins samband við þjónustufulltrúa. Og eftir að hann var búin að láta mig prufa endalausar tilraunir til að fá allt til að virka komst hann að því að merkið hér í blokkinni væri of sterkt og þar af leiðandi truflaði það myndlykilinn. Hana nú allt í skralli!
En svo var einhver loftneta kall hér í dag og þegar ég kom heim var stöð 2 farin að virka;)
En vá hvað allir þeir sem vinna í þjónustuveri stöðvar 2 eiga mína samúð því það er örugglega geðbilað að gera og allir sem hringja inn eru orðnir pirraðir á að þurfa að bíða og bíða.
Oj hvað ég varð pirruð þegar ég sá að Bush vann kosningarnar var svo að vona að Kerry myndi hafa það. En mest lítið sem maður getur gert í því.
Jamms best að hætta þessu nethangsi og reyna að gera eitthvað af viti áður en ég skelli mér í saumó til hennar Guðlaugar.
That's all folks
miðvikudagur, nóvember 03, 2004
biðin endalausa.........
Birt af Eyrún kl. 18:47
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli