mánudagur, nóvember 22, 2004

éta éta éta.....

Held ég sé í svona nettu sykursjokki eftir helgin. Enda búið að vera stanslaust át og það kökuát.
Var ótrúlega myndarleg húsmóðir á föstudagskvöldið og bakaði köku enda átti bóndinn afmæli og solleiðis. Héldum svo upp á það á laugardag og þá byrjaði átið. Ekki nóg með það að hafa overdosað af kökum á laugardag þá áttu systur mínar afmæli í gær þannig að þá voru enn fleiri kökur étnar. Til hamingju með daginn í gær Bogga og Binna!!!!!!!
En haldiði að ég hafi verið komin með ógeð eftir 2 afmælisveislur????
Nei nei í gærkvöldi langaði mig geðveikt í eitthvað og hvað var annað hægt en að opna ísskápin taka út kökuafganga frá laugardeginum og gúffa í sig smá köku fyrir svefninn. Held ég sé ekki í lagi!

Engin ummæli: