Hlaut að koma að því að skrokkurinn á mér segði hingað og ekki lengra! Er með klemmda taug eða einhvern fjandann í bakinu og það er þrusu vont. Verkurinn leiðir niðu í fót og upp eftir bakinu;o( Og svo til að bæta gráu ofan á svart þá er ég búin að vera með dálitla þreytuverki í grindinni líka í dag. Mætti ekki í vinnuna í morgun, ekki alveg að meika að þurfa að sitja við tölvuna í marga klst þar sem ég er í mesta basli bara að komast um hérna heima hjá mér. Er bara búin að liggja í baði og vera svona sófaklessa í allan dag. En vonandi fer þetta að lagast svo ég geti mætt í vinnuna á föstudaginn, á nebblilega frí á morgun.
Sem betur fer er stutt í að ég minnki við mig vinnuna því ég hef sterkan grun um að öll þessi kyrrseta sé ekki að gera góða hluti fyrir bakið mitt.
Verð svo bara að reyna að dobbla kallinn til að nudda bakið vel og vandlega þegar hann kemur heim úr vinnunni.
Svo bara bachelorette í kvöld og svona, svo maður hefur það bara kósy yfir imbanum enda skítaveður úti.
That's all folks
miðvikudagur, desember 08, 2004
Bakið að gera uppreisn......
Birt af Eyrún kl. 17:30
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli