fimmtudagur, desember 02, 2004

Kjamms.....

Held ég sé alveg á góðri leið með að éta á mig gat í dag. Það er endalaust gúmmelaði hér í vinnunni. Piparkökur og nammi......
Og ég sem tók með mér mömmukökur sem ég bakaði í gærkvöldi.
Var svo myndarleg húsmóðir í gær að það hálfa væri nóg, held ég sé næstum búin með skamtinn fyrir mánuðinn.
Byrjaði daginn á því að fara að versla mér frystikistu (hagsýn húsmóðir hér á ferð) og brunaði svo heim og skellti í deig í tvær smákökutegundir. Svo eyddi ég gærkvöldinu í að standa baka mömmukökur.
En ofvirknin kom heldur betur niður á mér þegar ég var um það bil að skreiðast í rúmið því þá var ég farin að haltra um og var orðin ansk... þreytt í bakinu.
Hvernig í ósköpunum á ég að fara að því að nýta tíman í janúar eftir að ég hætti að vinna í að slaka á og taka því rólega.
Eins gott að fara að læra það!!

Engin ummæli: