Komin í vinnuna eftir 3 daga frí. Ljúft að vera svona í fríi er reyndar búin að vera hálf farlama heima alla helgina þar sem mjaðmagrindin og bakið eru ekki alveg upp á sitt besta. En eftir að hafa farið í skoðun í dag og í mat hjá sjúkraþjálfara, þá skoðuðum við Lilja málið og ég er komin í 50 % vinnu frá og með morgundeginum. Kannski ég nái þá að passa betur upp á mig og reyni ekki of mikið á þetta svæði.
Annars er helgin búin að vera mjög róleg bara smá jólagjafaleiðangur á laugardag og nú eru bara nokkrar gjafir eftir þannig að þetta er allt að vera búið. Svo bara að pakka inn og þá er ég reddý fyrir jólin, eða svona næstum því.
Þannig að allt á síðustu stundu en hefst fyrir rest:)
mánudagur, desember 20, 2004
Birt af Eyrún kl. 16:19
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli