Ussususs ég er orðin algjör aumingjabloggari, er farin að skrifa inn einu sinni í mánuði. Er ekki að lofa miklum úrbótum en ég skal samt reyna að taka mig á. Enda hef ég svo sem ekki mikið að blaðra um dagurinn hjá mér snýst aðallega um að skipta á bleijum og gefa brjóst og knúsa mesta krúsukall í heimi. Reyndar er nóg að gera fram undan þar sem guttinn verður skírður fljótlega þannig að ég þarf að fara að hella mér út í bakstur og læti. Og nei ég ætla ekki að segja ykkur hvað hann á að heita:)
Hey á meðan ég man
Hann átti afmæli í gær, hann átti afmæli í gær.
Hann átti afmæli hann Felix
hann átti afmæli í gær.
Til hamingju með 2 ára afmæli elsku frændi.
miðvikudagur, mars 09, 2005
aumingjabloggari
Birt af Eyrún kl. 13:55
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli