Ég held að ég fái bráðum nafnbótina kattarkonan hérna í hverfinu. Kötturinn minn er vanur því að geta vaðið inn og út um gluggann eins og hann vill og oftar en ekki ákveður hann að bjóða vinum sínum með í heimsókn. Oft þegar við Unnar komum heim þá heyrðum við 1-2 ketti ryðjast út um gluggann um leið og við stungum lyklinum í skránna. Einn var nú svo kræfur að hann læddist inn þegar enginn var heima og át gullfiskana okkar!!! Svo ákvað ég að stoppa þetta alveg þegar ég fór að vera svona mikið heima, enda þora þeir ekki fyrir sitt litla líf að koma hingað inn þegar einhver er heima. Og ég fór að loka glugganum í hvert skipti sem við fórum að heimann og yfir nóttina.
Síðan ég fór að loka glugganum höfum við eignast stalker, það er einn sem situr fyrir utan nánast allan daginn og bíður eftir að við förum og gleymum að loka glugganum. Og stundum kemur einhver og kíkir á gluggann til að ath hvort við séum heima eða ekki.
Áðan kíkti ég út til að ath hvort Emil væri eitthvað að rumska þá sátu 3 kettir á stéttinni fyrir utan hjá mér og gláptu allir á gluggann.
Haldiði að þetta sé normal ????
miðvikudagur, október 26, 2005
Birt af Eyrún kl. 16:10
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli