mánudagur, nóvember 21, 2005

Jæja þá er ég byrjuð að vinna á nýja vinnustaðnum, verst að vinnan breyttist ekkert. Nú er bara helmingi lengra fyrir mig að keyra í vinnuna. En ég ætla ekki að kvarta yfir því þar sem Unnar er að fara að byrja að vinna hjá össuri og þá verðum við hérna á sama blettinum einstaklega hentugt bílalega séð. En það er öllu verra að við lendum í bobba með dagmömmumál. Emil á bara tíma frá 10:30 og dagmamman er með fullt á morgnanna og getur ekki tekið hann fyrr. Svo við vitum ekki alveg hvað við eigum að gera þar sem Unnar verður að vinna frá 8-16 og ég 8-15 og það er svona heldur verra að skilja hann einan eftir heima. En við erum með alla putta og tær krosslagða um að finna aðra dagmömmu fyrir hann en það er nú bara hægara sagt en gert.
En verður meður ekki að vera bjartsýnn og segja bara þetta reddast!!!!!!!
En elskulegu systur mínar eiga afmæli í dag

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ BOGGA OG BINNA

knús og koss

Engin ummæli: