Er svo sybbin...............
Honum syni mínum fannst alveg tilvalið að vakna klukkan 6 í morgun sem væri í sjálfu sér allt í lagi ef hann hefði sofið vel í alla nótt. En þar sem hann var algjör bröltipúki þá náði ég ekki að sofna almennilega fyrr en rúmlega 3. Er þar af leiðandi ekki alveg sú sprækasta í dag en ég reyni bara að svolgra í mig kaffi og skella mér í overdrive. Vill reyndar til að éger að verða nokkuð sjóuð í að sofa sama og ekkert enda búinn að sinna þessum bröltipúka á hverri nóttu í rúma 11 mánuði. Eini munurinn er að núna þegar fæðingarorlofið er búið er víst ekki hægt að leggja sig með honum yfir daginn.
Var alveg über dugleg í gær og bónaði gólfið heima hjá mér, nú á bara eftir að þurrka af og þrífa smá í eldhúsinu, klára jólagjafirnar og þá er allt komið.
Oh well best að halda áfram að vinna ekki veitir af þar sem allt landið er að farast úr stressi og hringir inn stanslaust.
Adios mon amigos
miðvikudagur, desember 21, 2005
Birt af Eyrún kl. 09:02
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli