Oj nú er ég algjörlega búinn að fá nóg af þessu nýja vinnuhúsnæði. Það er hvergi tekið tillit til þess að fólki eigi að líða vel á vinnustaðnum. Það er allt allt of mikill hávaði hérna (og smiðirnir sem valsa hér inn og út eru ekki að bæta það), það er allt of mikið ljós í salnum. Það er vont að sitja á stólunum á kaffistofunni. Það er hvergi hægt að koma sér notalega fyrir því það er ekki neinn sófi. Og ég gæti haldið áfram að telja upp. Lúkkið á staðnum er fyrir öllu!!! við sem vinnum hérna verðum bara að sætta okkur við það og hananú.
Nema ég á alveg afskaplega erfitt með að sætta mig við það! Og nú er pirringurinn alveg að gera útaf við mig og ég nenni ekki að standa í því að vera hundóánægð í vinnunni alla daga. Spurning um að finna sér aðra vinnu kannski???
Jæja þá er ég allavega búinn að koma smá pirring frá mér þannig að ég ætti að vera í sólskinsskapi um helgina.
Góða helgi dúllurassarnir mínir;o)
föstudagur, desember 09, 2005
uppsafnaður pirringur
Birt af Eyrún kl. 13:33
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli