Jahérna hér alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Það er liðið heilt ár síðan ég fékk gullmolann minn í fangið í fyrsta sinn. Held svei mér þá að hann hafi stækkað í nótt. Afmælisdagurinn hans var líka alveg extra góður fyrir okkur, því við fengum að vita í hádeginu að við fengum úthlutað stærri íbúð hjá Búseta. Þannig að það er nánast allt að gerast í einu, ný vinna, ný íbúð, Emil byrjar í leikskóla og ég tala nú ekki um eins árs afmæli.
Þetta er núna official happadagur fjölskyldunnar;o)
miðvikudagur, janúar 18, 2006
1 ára......
Birt af Eyrún kl. 16:03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli