þriðjudagur, janúar 31, 2006

allt að gerast í einu

Nú fer alveg að líða að því að ég yfirgef skránna fyrir fullt og allt. Bara 3 dagar í viðbót, samt svoldið erfitt að vinna þessa 3 daga þar sem dagmamman mín er farin í fæðingarorlof frá og með morgundeginum og ég með enga pössun. Reyni að mæta í vinnuna og vera líka með strákinn í aðlögun í leikskólanum á sama tíma svo ég geti byrjað að vinna á mánudaginn. úff hljómar flókið! Aldrei að vita nema ég verði að draga það til baka að vinna þessa auka 3 daga. Verst að ég get ekki klónað mig svo ég geti verið á tveimur stöðum í einu.
ÞeTtA rEdDaSt AlLt!
Algjör snilld í gær að horfa á strákana þegar pétur fór í ungbarnasund, ég hló mig máttlausa. Og það fyndnasta var að þetta var tekið í lauginni sem við fórum í sundið. Emil sá Mínervu kennara og sat alveg dolfallinn að horfa á þetta. Greinilegt að hann kannaðist aðeins við þetta umhverfi.
Pétur er náttúrulega bara snillingur.
Jæja ætli ég verði ekki að fara að dröslast til að fara að gera eitthvað af viti það sem eftir er af þessum vinnudegi ;oþ

Engin ummæli: