Jæja nú er DV algjörlega búið að skíta á sig.
Hvað varð um "saklaus uns sekt er sönnuð"!!! En þetta pakk á DV heldur að það sé ekkert heilagt og nú þarf það að hafa sjálfsvíg á samviskunni, verði þeim að því.
Daddara nú er alltaf að styttast meira og meira í að ég fari að byrja í nýju vinnunni.... bara 3 vikur í viðbót á skránni. Og svo tekur við endalaust tími í föndur, leiki,útiveru og ótakmarkaðar sögustundir. Finnst samt skrítnast af þessu öllu að litli stubburinn minn sem er rétt að verða eins árs er að fara að vera leikskólastrákur;o)
Finnst hann eldast alveg um heilan helling við það!
Nú þarf ég líka að fara að setja í ofurmömmugírinn og snara fram eins og einni afmælisveislu, best að fara að finna kokkabækurnar og grafa upp sykulausar og hollar kökur. Ætla nú ekki að gera hann snælduvitlausan af sykuráti svona í fyrsta afmælinu.
Svo ætla ég nú að finna upp á einhverju sniðugu til að fara með til dagmömmunar líka svo hann geti nú haldið smá upp á afmælið með vinum sínum líka.
Hurru pásan búin verð að fara að vinna:oþ
ciao bella
miðvikudagur, janúar 11, 2006
pælingar dagsins
Birt af Eyrún kl. 10:34
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli