þriðjudagur, júní 06, 2006

blogg hvað....?

Úllala blogga hvað er það. Kannski maður skelli inn smá uppdate en svona er það þegar maður vinnur ekki fyrir framan tölvu allan daginn. Og ég er laaangt frá því að sakna þess að vinna tölvuvinnu. Er allavega rosalega ánægð að hafa hætt, miðað við þær sögur sem maður heyrir af gamla vinnustaðnum þá er ég mjög sátt að hafa komið mér þaðan út. Finnst alveg svaka stuð á leikskólanum,get líka verið úti í góða veðrinu og leikið mér ekki slæmt það. Mesti bónusinn er samt að ég fæ að njósna um gaurinn minn og hann nær að stelast í smá mömmuknús af og til yfir daginn.
Hmmm hvað meira ójá ég er líka búin að flytja síðan ég bloggaði síðast ekki lengur að bruna af nesinu í vinnuna nú þarf ég rétt svo að skreiðast yfir gullinbrúnna mikil munur þar á, sérstaklega þegar bensínið kostar morð og milljónir.
Jamm þannig að það er nóg að gera hér á bæ...

Engin ummæli: