Ég er að bilast á bílamálum. Afhverju þurfa bílar að vera svona andstyggilegir við mann að bila! Urg eða klessast. Vantar bara að einhver finni upp hinn fullkomna bilanalausa klessufría bíl bara til að gleðja mig. Erum nýbúin að eyða formúgu í að laga skrjóðinn en sá sem lagaði hann gerði það svo illa að bíllinn er enn hálfbilaður og til þess að við getum selt hann þarf að laga hann allan upp á nýtt. Ég er komin með alveg upp í kok af þessu. Svo get ég að vísu sjálfri mér um kennt að bíllinn er klesstur (var samt ekki að keyra) og það var ekki til að bæta vesenið. Og nú erum við mitt á milli þess að spá hvernig við reddum bíldruslunni svo við getum losað okkur við hann, þá erum við líka að rökræða hvernig bíl við eigum að fá okkur í staðinn. Þurfum náttúrulega að finna hinn fullkomna fjölskyldubíl sem er með nóg af plássi og eyðir ekki allt of miklu. pjúff og við höfum bara 6-8 vikur í að finna hann. Enda styttist óðum í kúlubúann og ekki séns að við ætlum að vera enn á piceofshitcar þá.
Urg leiðast bílar
fimmtudagur, mars 08, 2007
Þoli ekki bíla
Birt af Eyrún kl. 14:34
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli