Ég er búin að ákveða að segja leiðindapúkanum stríð á hendur, nenni ekki að láta mér leiðast lengur. Enda er alveg komin tími á að hann fari ég á bara eftir 2 tíma í vinnunni og þá tekur djammið við. Ef djamm skildi kalla ég verð víst að mæta kl 8 í fyrramálið og nenni ekki að vera þreytt hvað þá þunn.
Held að það sé merki um að maður sé að verða gamall þegar maður nennir ekki lengur að djamma kvöldið fyrir vinnu.
Það verður samt örugglega mikið stuð á gellunum enda sannir ML-ingar á ferð!
Komin tími að fara að hita upp fyrir 5 ára stúdentsafmæli í maí, oh mí god maður er bara orðin 5 ára stúdent. Mér finnst ekkert svo langt síðan ég var í menntó!
Það verður eitthvað voða húllumhæ á Laugarvatni á útskriftarafmælinu,það verður ekkert smá skrítið að fara aftur og gista á vistunum og halda almennilegt vistafyllery. Ekkert Kiwi til að reka mann fyrir læti og fyllery og enginn skrimmi til að labba á herbergin og rífa mann upp myglaðan í þynnkunni.
Those were the days.....................
laugardagur, mars 20, 2004
Birt af Eyrún kl. 20:04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli