þriðjudagur, mars 23, 2004

Ég var að enda við að klára skattskýrsluna mína áðan mér til mikillar gleði. Eftir að pabbi var búin að fara yfir ýttum víð á senda framtal og gerðum bráðabirgðaútreikning og þá fékk ég sjokk ég átti víst að borga fullt fullt af penge tilbaka. En svo föttuðum við eina vitleysu og sendum leiðréttingu þannig að ég þarf ekki að borga mange mange penge bara pínu lítið. En mikið er nú gott að vera búin með þennan skratta nú er allavega heilt ár í næstu:)
Svo var ég að fá svo skemmtilegar fréttir þegar ég kom í vinnuna ég sé bara fram á bjarta tíma gaman gaman!

Engin ummæli: