Oj var að lesa fréttablaðið og þar er nánast ekkert annað í því ein lýsingar á atferli barnaníðinga, hvernig þeir náðu í krakka og nánast hvað þeir gerðu við þá. Mér finnst þetta svo mikið ógeð ætti í rauninni að skera undan svona köllum.
Horfði á ísland í dag í gær þar sem var viðtal við hann gaur sem segist vera saklaus í þessu líkfundarmáli, maðurinn spilaði sig sem svo mikin hálfvita hann hefur greinilega ekki sjálfstæða hugsun samkvæmt því sem hann sagði í gær. Hann daglaðist bara með allan daginn og keypti allt sem var notað til að flytja líkið og allt það og leigði bílinn og keyrði út um allar trissur með lík í skottinu af því að það var einhver annar sem sagði honum að gera það.
Fannst þetta vera svoldið loðið hjá honum verð ég að segja. Hann var t.d. mjög mikið alltaf í göngutúr á meðan eitthvað mikið var að gerast, líkinu pakkað inn og líkinu dömpað.
Ég myndi allavega ekki taka þetta trúanlegt ef ég væri dómari, en þar sem ég er ekki dómari verð ég bara að hafa mínar skoðanir fyrir mig ekki satt!
föstudagur, mars 26, 2004
Birt af Eyrún kl. 11:13
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli