mánudagur, mars 29, 2004

Týpískur mánudagur

Ohh ekki minn dagur í dag. Ég er komin með massa hausverk ofan í alla syfjuna, kannski merki um að ég þurfi að venja mig á að nota brillurnar í vinnunni? Svo til að kóróna allt er mér núna líka orðið illt í maganum.Greinilegt að mallakútur vildi eitthvað annað en bollasúpu í kvöldmat, ég veit ekki hvaða heimtufrekja það er!
Langar mest að fara heim og skríða upp í rúm en það er víst ekki á dagskrá fyrr en eftir 3 tíma.
Er samt hætt í kaffisullinu enda var þetta sull svona nokkurnveginn það versta sem ég hef smakkað.
Kannski það sé bara kaffið sem er að gera mallann vitlausan?

Engin ummæli: