mánudagur, mars 29, 2004

Um leið og ég mætti í vinnuna þá sigu augnlokinn all svakalega og núna er hrein martröð að halda þeim opnum. Er að reyna að svolgra í mig kaffi verst að það er svo drulluvont ég gæfi aleigu mína fyrir 1 bolla af da vinci með karamellu frá kaffitár. En ég held að sá draumur verði að bíða fram á fimmtudag.
Svo er svo hryllilega mikið af ógeðslega leiðinlegu fólki að hringja inn að það er allt annað en sniðugt, vona að þetta sé bara svona týpísk mánudagsfýla í fólki vona að restinn af vikunni verði ekki svona!
Jæja best að svolgra í sig þessu kaffisulli og koma sér í að vinna eitthvað!!!!!

Engin ummæli: