þriðjudagur, apríl 27, 2004

Munurinn á kynjunum

Hennar hlið:
við hittumst á veitingahúsinu. Hann var utan við sig. Horfði út í loftið og virtist eirðarlaus. Hann sagði ekki neitt að fyrra bragði og svaraði öllum spurningum mínum með eins atkvæða orðum. Síðan fórum við á barinn. Hann var alveg eins þar. Ég spurði hvað væri að, hann sagði ekkert vera að. Í bílnum á leiðinni heim sagði hann heldur ekki neitt. Þegar við komum heim fórum við upp í rúm og ég byrjaði að kela við hann. Hann ýtti mér bara burt og sagðist ekki vera í stuði. Þá rann það upp fyrir mér; hann hlaut að vera kominn með viðhald....Ég hélt áfram að spurja hann hvað væri að og hélt áfram að kela við hann. Loksins tók hann við sér og við nutum ásta.

Hans hlið:
Arsenal tapaði.
Fékk samt að ríða.

Engin ummæli: