þriðjudagur, apríl 27, 2004

Ég held ég sé að verða heyrnarlaus á tólaeyranu, ég heyri ekki helminginn af því sem fólk segir. Vildi að ég gæti skipt og haft tólið á hinu en þá finnst mér allt snúa öfugt og ég verð alveg rugluð.
Ég get þá kannski nýtt mér það sem ég fór nú í háskólann til að læra, þ.e. táknmálið ekki mannfræðina.Hérna er fingrastafrófið svo þið getið æft ykkur í því.
Pælið í því ég gæti verið að fara að útskrifast sem túlkur núna í vor hefði ég ekki álpast til að hætta. Svona getur maður verið skarpur eftir á!

Engin ummæli: