Tralla lalla la mig langar út það er svo geggjað gott veður.
Helgin var alveg eins og hún átti að verða bara slappað af og rólegheit. Krilla kíkti í heimsókn á föstudag og við gláptum á ungfrú reykjavík, frekar sorglegt sjónvarpsefni verð ég að segja. Þær voru allar eitthvað svo stífar og hálf valtar þegar þær voru að labba, maður svona hálf vorkenndi þeim því það leit út eins og enginn af þeim vildi vera þarna. Annars finnst mér þessar fegurðarsamkeppnir allaf jafn bjánalegar, kroppasýningar og keppni i að vera sætust.
Fórum svo í afmælismat til múttu á laugardagskvöldið ummm mömmumatur bestur í heimi!! Eftir matin fórum við Unnar heim og kúrðum yfir sjónvarpinu.Ekki mikið afrekað þann daginn, jú ég þvoði gluggana að utan húrra fyrir mér!
Svo fór gærdagurinn í það að þrífa slotið og að þvo þvott, merkilegt hvað mikið safnast af þvotti eftir 2 manneskjur.
Fór í bíó í gær að sjá mynd sem heitir Timeline hún er allt í lagi er um tímaflakk og svoleiðis mæli með henni ef þið viljið fara á sitja og horfa ekkert að pæla mynd.
mánudagur, apríl 26, 2004
Birt af Eyrún kl. 18:27
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli